Nú þegar 5.973 atkvæði hafa verið talin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra efstur með 2.920 atkvæði.
Þar með stefnir í að Guðlaugur Þór verði einn helsti þungaviktarmaður Sjálfstæðisflokksins og augljós arftaki Bjarna Benediktssonar.
Í öðru sæti er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra með 4.061 atkvæði í 1. – 2. sæti.
Í þriðja sæti er Diljá Mist Einarsdóttir með 2.440 atkvæði samanlagt í 1. – 3. sæti.
Í fjórða sæti er Hildur Sverrisdóttir með 2.331 atkvæði samanlagt í 1. – 4. sæti.
Í fimmta sæti er Birgir Ármannsson með 2.753 atkvæði samanlagt í 1. – 5. sæti.
Í sjötta sæti er Brynjar Níelsson með 3.209 atkvæði samanlagt í 1. – 6. sæti.
Í sjöunda sæti er Kjartan Magnússon með 2.850 atkvæði samanlagt í 1. – 7. sæti.
Í áttunda sæti er Friðjón R. Friðjónsson með 2.602 atkvæði samanlagt í 1. – 8. sæti.