„Vegna óvissu í Covid-málum og samkomutakmarkana hef ég ákveðið að aflýsa eða fresta fyrirhugaðri vinnustofu um óákveðinn tíma,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson í tilkynningu sem Fréttablaðið birti í morgun.
Hafði Guðmundur boðað til vinnustofunnar Innri styrks sem átti að fara fram þann 27. desember næstkomandi sem hefur nú verið aflýst vegna heimsfaraldursins.
Guðmundur gekkst undir handaágræðslu í janúar og hefur hann verið töluvert í sviðsljósinu síðan þá og sýnt árangur aðgerðarinnar. Vinnustofan átti að verða fræðandi og gefa einstaklingum betri sjálfsþekkingu en segir Guðmundur að seldir miðar verði endurgreiddir á næstu dögum.