Guðmundur H. Garðarsson, fyrrverandi alþingismaður og verkalýðsleiðtogi, er látinn. Guðmundur lést 18. apríl, 95 ára að aldri. Hann fæddist í Hafnarfirði árið 1928.
Guðmundur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið
1954. Hann var kjörinn á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík árið 1974. Hann var þingmaður allt til ársins 1991. Hann sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, bankaráði
Verzlunarbanka Íslands og Íslandsbanka. Þá var hann í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna um árabil.
Hann vann var formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur í 12 ár eða frá 1957 til 1979 og sat í miðstjórn Alþýðusambands Íslands á árabiilinu 1966-1976.
Eiginkona Guðmundar var Ragnheiður Guðrún Ásgeirsdóttir læknaritari, fædd 1931. Hún lést árið 2008. Synir þeirra eru Guðmundur Ragnar, og Ragnar Hannes.
Mogginn sagði frá andláti Guðmundar.