Guðmundur Gunnarsson fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar blandar sér í umræðuna í stóra flugfreyjumálinu í nýjustu færslu hans á Facebook. Guðmundur var flugþjónn á árum áður og birtir hann með 20 ára gamla mynd.
„Sem fyrrverandi flugfreyja vil ég henda inn túkalli í umræðuna,“ segir Guðmundur og bendir á að flugfreyjur- og þjónar eru öryggisverðir háloftanna þó að margir lítir aðeins á starfsstéttina sem sætar gengilbeinur.
„Flugfreyjur eru í raun slyngir öryggisverðir sem, með brosi og instantkaffi, fá þig til að gleyma því að þú ert á 900 kílómetra hraða í 12 kílómetra hæð. Í kremju. Inni í þunnu álröri. Með nælonbelti.
Mér finnst það merkilegt. Eiginlega aðdáunarvert.
Þau róa þig og hughreysta þegar þú ælir, fríkar út, drekkur of mikið, tapar kúlinu, grætur eða slefar í svefni. Kveðja þig svo með hlýju brosi.
Þau eru líka langlíklegust til að koma þér lifandi út úr álrörinu ef eitthvað fer úrskeiðis. Þau vita það en pirra sig samt aldrei á því að allir haldi að þau séu lítið annað en sætar gengilbeinur.
Þetta er ekki auðvelt djobb sem flugfélög geta verið án. Þetta er gríðarlega mikilvægur hlekkur í keðju sem beinlínis gengur út á þjónustu og öryggi.
Að tala stéttina niður lýsir skilningsleysi.“