Guðmundur nokkur var ekki parhrifinn af smurða rúnstykkinu sínu sem hann keypti á þjónustustöð N1. Máli sínu til stuðnings birti hann þessa mynd af brauðmetinu inni í fjölmennu samfélagi matgæðinga á Facebook, Matartips!:
Við myndina spyr Guðmundur:
„Ef þið smyrjið ykkur rúnstykki að væruð þið sátt við þetta? N1 svoleiðis að bruðla smjöri…“
Fjölmargir tjá sig undir færslu Guðmundar, flestir gagnrýna hið smurða rúnstykki á meðan aðrir lýsa yfir ánægju sinni. Pálínu þykir ekki mikið til vinnubragða N1 koma. „Þessi þarf að fara til mömmu minnar í nám við að smyrja brauð, segir Pálína. Arnar er henni sammála. „4 ára gömul dóttir mín smyr betur en þetta!,“ segir Arnar.