Forseti Íslands hrósar íslenska karlalandsliðinu í handbolta fyrir sigurinn á Dönum.
Í einlægri færslu sem Guðni Th. Jóhannesson birti á Facebook hrósar hann landsliðinu fyrir frækilega frammistöðu. „Frábær sigur hjá strákunum okkar í handboltanum í kvöld! Mikið afrek að sigra geysisterkan andstæðing, heims- og Ólympíumeistara. Og stuðningur landans á pöllunum var meiriháttar, Íslendingar yfirgnæfðu mun fjölmennari Dani á köflum. Gaman var að hitta svo marga Íslendinga hér í Malmö, fyrir leik og svo í höllinni sjálfri,“ skrifar Guðni sem var viðstaddur þegar leikurinn fór fram og heldur áfram.
„Landsliðið á heiður skilinn, allt aðstoðarfólk og ekki síst Guðmundur þjálfari Guðmundsson. Nú er það í hans verkahring að undirbúa þessa dáðadrengi fyrir næstu viðureign. Miðað við frammistöðu dagsins er engu að kvíða en allir mótherjar eru erfiðir í þessari keppni.
Koma svo, áfram Ísland!“
Eins og kunnugt er sigraði Íslenska liðið Dani í Malmö fyrr í kvöld, 30-31, í fyrsta leik sínum á EM 2020.