Guðrún Bergmann, rithöfundur, heilsu- og lífstílsráðgjafi segir bólusetningar gegn Covid-19 part af samsæri skuggayfirvalda um að breyta DNA hjá mannkyninu. Takmarkið sé að búa til foreldralaust samfélag.
Guðrún hélt þessu fram í nýjasta viðtali bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþætti þeirra Þvottahúsið, sem er bæði á YouTube og mbl.is.
Guðrún hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Hún hefur haldið ótal námskeið og verið afkastamikill rithöfundur á sviði heilsu, sálar og líkama.
Þegar Wiium-bræður spurðu hana út í ástæðu þess að hún vilji vara fólk við bólusetningum en hún hefur verið nokkuð áberandi síðustu tvö árin í umræðunni um veiruna og mögulegar aðgerðir gegn henni, segir Guðrún ástæðuna vera innri réttlætiskennd.
„Innri réttlætiskennd og innri sannfæring og ég er eins og ég er, fólk segir, af hverju getur þú ekki bara hætt og gert svona eða hinsegin? En þetta er ég, ég þarf að ýta við fólki og vara það við,“ segir Guðrún og bætir svo við. „Þetta er bara mín innri sannfæring að þetta væri efni sem ég þyrti að vara við og að þetta væri ekki eins og það liti út við fyrstu sín.“
„Það er líka athyglisvert að veiran kemur upp í Wuhan og svo kemur hún upp í Ítalíu og svo í Seattle í Bandaríkjunum. Halló! Hvernig flaug hún á milli, hver dreifði henni? Yfirleitt er það farldsfræðilegt eftir landi sem smitast yfir í næsta land.“
Guðrún heldur áfram og talar um þær myndir sem hafa verið gerðar af veirunni.
„Myndir af veirunni eru rosa flottar, rauðar, bláar, grænar og allavega litaðar en þetta eru bara tölvumyndir.” Segir Guðrún sem heldur því fram að veiran sem slík hafi aldrei verið einangruð eða séð.“
og ofbeldi ríkis gegn sínu eigin fólki.
„Minn skilningur er að með PCR sé verið að safna DNA úr okkur,“ segir Guðrún.
Aðspurð um tilgang þess segir hún að planið sé að búa til foreldralaust samfélag.
„Framtíðarheimurinn byggir upp á því að endurræsingin mikla eða New world order vill að búa til foreldralaust samfélag og bara framleiða börn, bara í kössum,“ og á þá við skuggayfirvöld heimsins sem vinsæl er í heimi samsæriskenninga, New World Order sem hafi það þá stefnuskránni að búa til nýtt samfélag manna, í anda þess sem lesa má um í bók George Orwell, 1984.
Greinin lýsir því í smáatriðum á vægast sagt reifarakenndan hátt hvernig covid fárið, sem og allur þessi bóluefnaferill sem við stöndum í, sé ekkert nema hluti af plani, enduræsingu sem felur í sér að öðlast betri stjórn og yfirsýn yfir almenning. Einnig að ferlið feli í sér að fækka mannfólki á jörðinni og nefnir hún í því samhengi fækkun úr rúmum 7 milljörðum niður í aðeins um 500 milljón jarðarbúa og þá sem viss niðurskurður í hagræðingarskyni.
„Samkvæmt planinu, New World Order planinu, eigum við öll að vera merkt, við eigum öll að vera með QR kóða svo hægt sé að fylgjast með hvar við erum, það á að skammta okkur það sem kallast borgaralaun,“ segir Guðrún og talar um punktakerfið sem er búið að taka upp í Kína, þar sem fólki er úthlutað punkta sem þau geta svo misst með því að henda rusli á götuna eða með því að gagnrýna yfirvöld og fleira og þannig misst réttinn til að ferðast með lest og fleira.
„Fjármálaheimurinn plús tækniheimurinn hafa komið saman og búið til þessa biluðu hugmynd að þeir ætli að fækka mannkyninu niður í 500 milljónir og að róbotar eigi að sjá um fullt af stöfunum og við eigum að vera hálf mennsk og hálfir róbotar.“
Seinna í viðtalinu spyr Gunnar Guðrúnu nánar út í planið, hina miklu endurræsingu (The Great Reset).
„Eins og ég segi, fólk verður að vakna! Og það skiptir ekki máli hvort þú hafir fengið sprautu í upphandlegginn eða ekki. Það er verið að ljúga að okkur og það er verið að stýra okkur inn í svona framtíðar útópíu einhverra örfárra manna, það er talað um 3.000 manns sem standa á bakvið hinu miklu endurræsingu til að gera okkur að enn meiri þrælum, hefta ferðafrelsi, ég meina þú kemur kannski til með að þurfa fá leyfi til að skreppa upp á Skaga í framtíðinni“
Undir lok viðtalsins spyrja bræðurnir Guðrúnu að því hvað hægt sé að gera til að halda sér heilum í „þessum stormi“
„Það er að verða alger umbylting á jörðinni, sem verður yfirleitt á 12 þúsund ára fresti, orkutíðnin er að hækka. Við getum undirbúið okkur undir hana með því að halda innri ró og jafnvægi, til dæmis með hugleiðslu og með því að hækka tíðni okkar upp í kærleika, í stað þess að lifa í ótta og reiði, sem er ráðandi tilfinning þessa dagana og á mjög lágri tíðni.“
Hægt er að horfa á þetta áhugaverða viðtal í heild sinni á YouTube rás Wiium bræðra og venjulega má einnig sjá viðtöl þeirra á Mbl.is en af einhverjum dularfullum ástæðum fékk þetta viðtal aðeins að vera í fimm klukkustundir þar inni áður en það var tekið út án útskýringa. Hvort New Word Order hafi haft hönd í bagga þeirrar ákvörðunar skal ósagt látið.