Gul veðurviðvörun er í gildi á Suður- og Suð-Austurlandi. Samkvæmt Veðurstofu Íslands er búist við töluverðri snjókomu í landshlutunum og gera megi ráð fyrir að færð geti spillst. Vegfarendur eru því beðnir um að fara öllu með gát.
Athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands er eftirfarandi:
„Snjókoma eða skafrenningur á sunnanverðu landinu, einnig á Norður- og Austurlandi seinnipartinn og í kvöld. Getur valdið erfiðum akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum.
Norðanhvassviðri með vindhviðum að 30 m/s á Suðausturlandi á morgun. Varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.“
Vegagerðin:
Athugið: Gul viðvörun Veðurstofu Íslands er í gildi fyrir daginn í dag og má búast við mikilli snjókomu á Suðurlandi og Suðausturlandi, færð gæti orðið erfið og jafnvel spillst vegna blindu. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) March 26, 2023
Veðurstofa Íslands:
Gengur í suðaustan 10-18 m/s með snjókomu eða skafrenningi á sunnanverðu landinu, en snýst í norðan 8-15 með stöku éljum vestantil síðdegis. Austan og norðaustan 8-15 og fer að snjóa norðan- og austanlands seinnipartinn og í kvöld. Frost 2 til 12 stig, kaldast norðaustantil, en í kringum frostmark syðst yfir hádaginn.
Norðan og norðaustan 5-13 m/s á morgun, en 13-20 suðaustantil. Él á norðanverðu landinu, en snjóar austanlands framan af degi, annars yfirleitt bjartviðri. Smám saman minnkandi vindur og úrkoma seinnipartinn og dregur úr frosti.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Austan 5-13 m/s, en 13-18 við suðurströndina. Dálítil él víða á landinu, en úrkomulaust að kalla á Vesturlandi. Frost víða 1 til 8 stig, en frostlaust syðst.
Á miðvikudag:
Austanátt, víða 10-15 m/s og snjókoma eða slydda, en 15-20 og rigning syðst, úrkomusamast suðaustanlands. Hiti víða 0 til 4 stig, en vægt frost fyrir norðan.