Spáð er strífrí og hviðóttri sunnan- og suðvestanátt með talsverðri útkomu á Vesturlandi en rigningu með köflum í öðrum landshlutum. Í Breiðafirði, á Vestfjörðum, Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Suðausturlandi eru gular viðvaranir í dag vegna hvassviðris eða storms. Veðurstofan ökumenn um að sýna fyllstu varúð.
Áfram er útliti fyrir bjartviðri á Austurlandi og hita allt að 23 stigum en víðast hvar verður hitinn á bilinu 10 til 15 stig. Á Vesturlandi hefur rignt mjög undanfarna daga og þar er áfram spáð talsverðri útkomu sem þýðir áframhaldandi vatnavexti. Varað er við auknum líkum á grjóthruni og skriðum.