Gunnar Smári Egilsson, foringi Sósíalistaflokksins, er maðurinn að baki byltingunni í Eflingu þegar Sólveig Anna Jónsdóttir komst til valda og hrissti duglega uppi í verkalýðsbaráttunni. Gunnar Smári studdi Sólveigu með þeim árangri að til varð hópur róttækra verkalýðsforingja eins og Ragnars Þórs Ingólfssonar, Sólveigar og Vilhjálms Birgissonar á Akranesi sem standa nú saman í herferðinni gegn skrifstofufólki Eflingar.
Það vekur athygli að í allri orrahríðinni undanfarið vegna brottreksturs launafólksins hjá Eflingu kemur Gunnar Smári eki til varnar Sólveigu og blandar sér ekki í umræðuna að öðru leyti en því að hann upplýsti um helgina að hann teldi ekki að stallari Sólveigar Önnu, Viðar Þorsteinsson fyrrverandi framkvæmdastjóri, kæmi til starfa við hlið hennar þar sem hann stæðist ekki þær hæfniskröfur sem gerðar voru í auglýsingu félagsins. Þá var eftir því tekið á dögunum að ýfingar voru á Facebook milli Sólveigar Önnu og Öldu Lóu Leifsdóttur, ljósmyndara og eiginkonu Gunnars Smára. Margt bendir því til þess að vik sé á milli vina og leiðir hafi skilið …