Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda Sósíalistaflokks Íslands er síður en svo sáttur við orð Hallgríms Helgasonar rithöfunds, um Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrum forseta lýðveldisins.
Hallgrímur Helgason horfði á Ólaf Ragnar í Silfri Egils á Rúv í gær þar sem hann ræddi stríðið í Úkraínu. „ÓRG talar eins og Gunnar Smári. Allt Vesturlöndum að kenna. Engin sök hjá Pútín. Engin samúð með Úkraínumönnum,“ skrifaði rithöfundurinn á Facebooksíðu sína.
Gunnar Smári svarar Hallgrími á síðu Sósíalista:
„Lygabrjálæðið mikla heldur áfram frá kaldastríðskrötum. Þau sem ekki falla fram og biðja guð að blessa Nató eru Pútínistar; allt helsta fræðafólk sem hefur rætt um innrásina, aðdraganda og afleiðingar, hefur gagnrýnt stefnu bandaríkjanna og Nató í Austur-Evrópu, einnig friðarsinnar, herforingjar, fyrrum stjórnmálaskörungar … allir nema Prins Valíant-drengirnir* í Samfylkingunni sem heimta no-fly-zone þótt það kosti kjarnorkustyrjöld, heimta mannfórnir Úkraínumanna og heimta hervæðingu heimsins.
* sturlun þessar miðaldra karla hefur fengið mig til að reyna að skilja hvað býr að baki. Þetta eru menn sem hafa aldrei sýnt af sér neina þekkingu á heimsmálum og eiga meira að segja erfitt með tjá sig um pólitík, falla fljótt í einhvers konar vinsælu-krakka-taktík um að ESB sé smart en Miðflokkurinn halló eða eitthvað enn vitlausara. Miðað við umræðu þeirra um innrásina í Úkraínu er eins og þeir upplifi þetta eins og síður úr Prins Valíant-blöðum sem voru vinsæl þegar þeir voru drengir, baráttu góðs og ills sem endar alltaf á því að Selenskí prins drepur hinn svartra riddara Pútín. En af hverju er þetta borið á borð í dag? Er ekki nóg af heimsku í heiminum?“