„Vaknaði í hádeginu án verkja í mjöðminni í fyrsta sinn í mörg ár, kominn með stálmjöðm og búinn að ganga á henni heila sjö metra,“ skrifar Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, sem er á sjúkrahúsi til að fá bót við langvarandi kvilla.
Gunnar Smári er þannig orðinn sósíalisti með stálmjöðm. Hann hefur fengið fjöldann allan af baráttu- og batakveðjum í tilefni af þessum tímamótum.
Meðal þeirra sem skrifa í athugasemd hjá Gunnari Smára er Ólafur Haukur Símonarson, einn dáðasti rithöfundur þjóðarinnar.
„Í æsku las ég með áfergju reifarann „Maðurinn með stálhnefann“, það kom reyndar hvergi fram að hann væri marxisti, en ég gekk út frá því. Marxisti með stálmjöðm hljómar ennþá betur. Góðan bata!“.
Gunnar Smári er bjartýnn á að hann aðlagist stálinu fljótt og vel.
„Ég reikna með að vera kominn í landsliðið í fótbolta áður en undankeppnin er búin“.