„Páll Vilhjálmsson, sögukennari við Fjölbrautarskólann í Garðabæ bendir hér á hið augljósa í ágætum pistli á Moggablogginu. Hann mátti þakka lögunum í lýðræðislega réttarríkinu fyrir að verða ekki leystur frá störfum vegna skoðana sinna og skrifa um ágreiningsefni samtíðarinnar,“ ritar Gústaf Níelsson á samfélagsmiðli og bætir við:
„Hann hafði greinilega rétt fyrir sér en RÚV og skólameistari rangt. Það er að koma betur og betur í ljós.“
Gústaf segir að „smáþjóð verður að gæta sjálf að sjálfstæði sínu og fullveldi, því enginn gerir það fyrir hana. Sannleikurinn er sá að þjóðir eiga sér ekki vini, bara hagsmuni, eins og Bismarck benti á forðum.“