Stafrænt Ísland hefur á síðustu mánuðum unnið að útgáfu stafrænna ökuskírteina í samvinnu við Ríkislögreglustjóra til notkunar í snjallsíma innan Íslands.
Í vor verður hægt að fá stafrænt ökuskírteini í síma. Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins. Þar segir að fjölmargir nota nú símann sem greiðslukort, flugmiða og svo framvegis og því ættu stafræn ökuskírteini að verða til hagsbóta fyrir margt fólk.
Tæknileg útfærsla er tilbúin og næstu skref eru því að hefja útgáfu á stafrænum ökuskírteinum fyrir snjallsíma, jafnt fyrir Android og iOS stýrikerfi.
Notendur munu geta fengið stafrænu ökuskírteinin með því að sækja um þau á Ísland.is. Stefnt er að því að koma stafrænum ökuskírteinum í gagnið fyrir 1. júní 2020.