Tveir einstaklingar sem tippuðu á rétt úrslit í enska boltanum unnu 8,3 milljónir hvor. Þetta kemur fram á vef Íslenskrar getrauna.
„Það kom nöskum tippara heldur betur á óvart þegar starfsmaður Getrauna hringdi í hann á mánudagsmorgun og óskaði innilega til hamingju með vinning upp á 8,3 skattfrjálsar milljónir. Tipparinn hafði ekki hugmynd um vinninginn, hann hafði fylgst aðeins með seðlinum á laugardeginum og sýndist hann stefna í 11 rétta en mörk á lokamínútum í leikjum hjá Stoke og Leeds tryggðu honum 13 rétta,“ segir á vef Íslenskrar getspár.
Þar segir að annar Íslendingur hafi verið heppinn og fái einnig 8,3 milljónir í sinn hlut.