Hallandi staur sem GPS-mælir var festur á varð til grunsemdir kviknuðu um hlaup í Grímsvötnum. Snjór umhverfis staurinn bráðnaði og hann fór að halla með þeim afleiðingum að sérfræðingar héldu að yfirborðið væri að lækka og því hlaup í vændum. Sérfræðingar á vegum almannavarnareild ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunnar og Veðurstofu Íslands fóru með þyrlu í gær upp á Grímsfjall til að meta aðstæður.
Því var um falska viðvörun að ræða samkvæmt Morgunblaðinu sem greindi frá. Við Grímvötn virðist allt með kyrrum kjörum og engin merki um að hlaup sé að hefjast nú. Fyrirhugað er að hópur frá Veðurstofu Íslands fari aftur að Grímsvötnum á morgun.
Einar Hjörleifsson, sérfræðingur á veðurstofunni, óttast frekar gos á svæðinu heldur en hlaup. Hann segir að gögn sem liggja fyrir á þessari stundu bendi ekki til þess að hlaup sé að hefjast í Grímsvötnum en skyndilegur þrýstingsléttir vegna hlaups getur hleypt af stað gosi.