Tilkynning barst frá Hamborgarafabrikkunni á Facebook í gær þar sem tilkynnt var að vegna sóttkvíar starfsfólks verði lokað tímabundið á Hamborgarafabrikkunni á Höfðatorgi og í Kringlunni
Rúmlega þúsund manns hafa verið að greinast með kórónuveiruna undanfarna daga og samtals eru nú um 17 þúsund manns í einangrun eða sóttkví í augnablikinu. Hefur þetta haft gríðarleg áhrifa á fjölmörg fyrirtæki á landinu.
Samkvæmt tilkynningu Hamborgarafabrikkunnar munu staðirnir opna aftur eins fljótt og auðið er. „Sýnum ábyrgð og gerum þetta saman,“ segir að lokum í færslunni.