Laust eftir miðnætti var lögreglu tilkynnt um grunsamlega menn að sniglast við bifreiðar í austurborginni. Lögregla kannar málið.
Drukkinn maður var til vandræða við hótel í borginni. Maðurinn tók tiltali lögreglunnar vel og hélt sína leið eftir samtal við lögreglu.
Enn var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir nálægt miðbænum um klukkan eitt í nótt. Málið var kannað og engin ummerki fundust um innbrot.
Ökumaður stöðvaður laust eftir klukkan 3 í nótt, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Hann var látinn laus að sýnatöku lokinni.
Tilkynnt var um aðfinnsluvert aksturslag á Reykjanesbraut. Lögregla skoðar málið.
Maður hringdi í lögreglu í nótt og sagðist hafa orðið fyrir líkamsárás. Þegar lögregla mætti á staðinn voru meintir gerendur horfnir af vettvangi. Þeir höfðu lagt á flótta á bifreið. Lögregla hóf strax leit að meintum ofbeldismönnum. Málið er í rannsókn.
Í gærdag var hamslaus kona staðin að því að kasta búslóð fram af svölum. Um minniháttar eignaspjöll var að ræða.
15 ára drengur missti stjórn á sér og kastaði skóflu í átt að lögreglumönnum. Skóflan lenti á lögreglubifreiðinni og urðu minniháttar skemmdir.