Maður í annarlegu ástandi var handtekinn í Kópavogi laust fyrir klukkan 19 í gærkvöldi. Maðurinn var gestkomandi í húsi og vildi ekki fara þaðan. Maðurinn, sem er grunaður um líkamsárás og vörslu fíkniefna, ar vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.
Annar karlmaður var handtekinn klukkan rúmlega 17 í gær að Fiskislóð í Reykjavík. Maðurinn er grunaður um þjófnað úr verslun, en hann hafði sett varning innan klæða og var stöðvaður er hann ætlaði að yfirgefa verslunina. Manninum var haldið þar til lögregla kom á vettvang.
Rúmlega eitt í nótt var tilkynnt um innbrot á bensínstöð í hverfi 110. Búið var að brjóta rúðu og fara inn. Ekki er vitað hverju var stolið.
Laust fyrir klukkan fimm í nótt var tilkynnt um innbrot í matvöruverslun á Seltjarnarnesi. Þar var búið að brjóta rúðu og fara inn, ekki er vitað hverju var stolið.