Drápshundar í Langholtshverfi réðust á ketti í hverfinu í gær og drápu þá. Talið er að hundarnir séu þeir sömu og áður hafa komið við sögu dráps á köttum. Hundarnir eru taldir vera af tegudinni Weimaraner.
„Það var rétt í þessu laus hundur í Efstasundi og hann drap köttinn okkar. Veit einhver hver á þennan hund eða hunda? Kötturinn reyndi að komast inn í gegnum lúguna, komst ekki,“ skrifaði kona í hverfisgrúppui á Facebook. DV vitnaði til ummælanna. Annað tilvik var einnig tilgreint á sama vettvangi.
„Þessir hundar voru að drepa kött kærastans míns! Hringdu á lögguna strax,“ segir kona í ummælum undir færslunni í hópnum.