Mánudagur 23. desember, 2024
2.8 C
Reykjavik

Hannes féll eftir 10 ára bindindi: „Fjörutíu og fjögurra ára faðir gisti fangageymslu þá nótt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Á næsta borði setjast tveir herramenn og eru að drekka. Á einhvern óskiljanlegan hátt þigg ég boð um að drekka með þeim, það endar ekki betur en svo að ég lendi í áflogum við þessa menn og við erum beðnir um að yfirgefa veitingastaðinn,“ skrifar Hannes Steindórsson, bæjarfulltrúi og fasteignasali, um ferð sína erlendis sem varð til þess að hann féll eftir 10 ára edrúmennsku.

Hannes lýsir atburðinum í Svíþjóð af einlægni. Eftir að lögreglan kom á veitingastaðinn var hann lokaður inni í fangaklefa.

„Fjörtíu og fjögurra ára, þriggja barna faðir gisti fangageymslu þá nótt. Daginn eftir geng ég út eftir að hafa greitt sekt, ein til ríkisins og einnig til þessara ágætu manna. Það var ekki hátt á mér risið, skömmin ólýsanleg og líðanin eftir því. Ég fer beint í faðm fjölskyldu minnar og í raun trúi ekki að ég hafi lagt þetta á þau,“ skrifar Hannes.

Hann segist nú hafa tekið upp þráðinn að nýju eftir hliðarsporið og rækti edrúmennsku sína.

„Ég flýg til Íslands daginn eftir og tek ábyrgð á gjörðum mínum með viðeigandi hætti. Eftir það fór ég beint á þann stað þar sem ég á heima, 12 spora samtök sem gera mig að betri manni, betri föður, betri syni“.

 

- Auglýsing -

Færsla Hannesar í heild sinni:

„Kæru vinir, það eru þung skref að skrifa þessa færslu, þið sem þekkið mig vitið að ég er bindindismaður og alkahólisti, ég hef skammast mín lengi fyrir það og ekkert verið að auglýsa það.

Ég hef verið allsgáður meira og minna síðan 2005 og alveg síðan 2009, í tæp 11 ár hef ég verið frjáls og laus við Bakkus. Í lífinu gerir maður mörg mistök og tekst á við allskonar verkefni sem manni eru falin, sum þægileg og falleg, önnur erfið og illviðráðanleg, þannig er jú lífið. Ég gerði stór mistök fyrir nokkru þar sem ég drakk sterkt áfengi, ég er með ofnæmi fyrir áfengi og mér er fullljóst að það á ekki að fara inn fyrir mínar varir. Ástæða þessa skrifa er í fyrsta lagi að koma hreint fram og sætta mig við þá stöðu að ég er alkahólisti, önnur ástæða er að fjölmiðlar hafa hringt í mig með vel kryddaðar sögur og undir rós hótað að birta lygasögur og kjaftasögur. Rétt skal vera rétt, undirritaður sat einn inná veitingastað í svíþjóð að svara tölvupóstum og símtölum, á næsta borði setjast tveir herramenn og eru að drekka. Á einhvern óskiljanlegan hátt þigg ég boð um að drekka með þeim, það endar ekki betur en svo að ég lendi í áflogum við þessa menn og við erum beðnir um að yfirgefa veitingastaðinn, stuttu seinna kemur lögreglan og fylgir okkur út af staðnum, Fjörtíu og fjögurra ára þriggja barna faðir gisti fangageymslu þá nótt. Daginn eftir geng ég út eftir að hafa greitt sekt, ein til ríkisins og einnig til þessara ágætu manna. Það var ekki hátt á mér risið, skömmin ólýsanleg og líðanin eftir því. Ég fer beint í faðm fjölskyldu minnar og í raun trúi ekki að ég hafi lagt þetta á þau. Ég flýg til Íslands daginn eftir og tek ábyrgð á gjörðum mínum með viðeigandi hætti. Eftir það fór ég beint á þann stað þar sem ég á heima, 12 spora samtök sem gera mig að betri manni, betri föður, betri syni.

- Auglýsing -

Ég ákvað að segja frá þessu sjálfur þar sem ég sætti mig ekki við hótanir fjölmiðla.

Ég er kominn á réttan stað aftur og ætla að vera þar. Kærleikskveðja Hannes Steindórsson sem er svo langt frá því að vera fullkominn.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -