Sandra Líf Þórarinsdóttir Long, sem leit hefur staðið að síðan á fimmtudag, fannst látin í fjörunni á Álftanesi á þriðja tímanum í dag, ekki langt frá upphafsstað leitarinnar um helgina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
Sandra Líf stundaði nám í þjóðfræði í Háskóla Íslands og starfaði sem þjónn meðfram námi. Hún var 26 ára, einhleyp og barnlaus.
Fjölskylda hennar vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem veittu aðstoð við leitina.
Mannlíf vottar fjölskyldu og vinum Söndru Lífar innilega samúð.
Ekkert hafði spurst til Söndru Lífar síðan á fimmtudag, skírdag, þegar hún yfirgaf heimili vinkonu sinni um hálf sexleytið. Leitað var um Hafnarfjörð, þar sem Sandra Líf átti heima, og í nágrenni. Leitin barst á Álftanes þar sem bíll Söndru fannst um hádegi síðasta laugardag. Mikill viðbúnaður hefur verið á meðan leit stóð yfir. Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru m.a. kallaðar á vettvang og hefur fjöldi manns tekið þátt í leitinni.
Sjá einnig: Leit stendur yfir að Söndru Líf