Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein er með COVID-19 sjúkdóminn. BBC greinir frá.
Weinstein var í dæmdur til 23 ára fangelsisvistar fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni þann 11. mars. Hann hefur verið í Wende-fangelsinu í New York síðan dómur í málinu féll og er talinn hafa smitast þar.
Weinstein er nú í einangrun og Michael Powers, fangelsismálastjóri New York-fylkis, staðfesti það. Powers sagði þá nokkra starfsmenn fangelsisins vera komna í sóttkví vegna smita sem hafa komið upp í fangelsinu.
Sjá einnig: Harvey Weinstein dæmdur í tuttugu og þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun