Eyjamenn vonast til að tíminn verði með þeim í liði og að hægt verði að halda Þjóðhátíð í eyjum með óbreyttu sniði í ár þrátt fyrir kórónaveirufaraldurinn sem gengur yfir landið. Ljóst þykir að stóru knattspyrnumótunum, Orkumótinu og Pæjumótinu sem haldin eru árlega í júnímánuði, verður frestað og hafinn er undirbúning þess að fresta þeim fram á sumarið.
Formaður ÍBV, Þór Vilhjálmsson, er sjálfur að ná sér eftir COVID smit og hefur miklar áhyggjur yfir því hvort náist að halda mótin og hátíðina enda skipti það sköpum í rekstri íþróttafélagsins. Tjónið yrði gífurlegt fyrir bæði félagið og bæjarfélagið í heild sinni.
„Ég hef það alveg þokkalegt, er að ná mér eftir að vera með veiruna. Nú bíðum við með öndina í hálsinum enda skiptir þetta okkur gríðarlega miklu máli, tekjulega séð. Þetta er um 70% af rekstrarfé okkar sem um ræðir,“ segir Þór og segir áætlanir liggja fyrir um frestun íþróttamótanna stóru. Hins vegar segir hann enga leið að fresta hátíðinni.
„Það er alveg ljóst að við getum ekkert fært hana aftur. Við erum enn vongóð, það eru 110 dagar í Þjóðhátíð og vonandi vinnur tíminn með okkur. Við höfum eðlilega miklar áhyggjur og leggjumst núna öll á bæn.“