Þingmaður Viðreisnar, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, segir það skringilegt að ræða um traust á milli stjórnarflokkanna þegar þingmenn eins þeirra báru víurnar í aðra flokka til samstarfs; formaður Viðreisnar hafi átt samtöl með óformlegum hætti við þingmenn Sjálfstæðisflokksins, eftir að ljóst var að Katrín Jakobsdóttir yfirgæfi forsætisráðuneytið:
„Varðandi þetta traust, þá er það auðvitað áhugavert að þegar er talað um sterkt traust þriggja flokka í millum og einn þeirra er í símanum þá má auðvitað setja spurningamerki við það,“ sagði Þorbjörg í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Teitur Björn Einarsson, sagði samstarf stjórnarflokkanna gott; að það væru verkefnin framundan sem hafi stýrt því í hvaða átt viðræðurnar fóru á endanum:
„Samkomulag þessara flokka að ná árangri fyrir fólkið í landinu og fyrir landið í heild hefur þurft að byggjast á góðu og miklu trausti og heilindum til að ná þeim sameiginlegu markmiðum fram.“
Varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, telur það ólíklegt á að ríkisstjórnin lifi út kjörtímabilið:
„Það kæmi mér á óvart ef annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar lifir lengur en hið fyrsta. Þessu stjórnarsamstarfi VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks er í raun löngu lokið; það var greinilega öllu illu hótað, stjórarslitum meðal annars.“ Hægt er að hlusta á Vikulokin í spilaranum hér fyrir neðan.
Hlusta má á Vikulokin hér.