Stjórnmálakonan Heiða Björg Hilmisdóttir er afmælisbarn dagsins í dag 21. febrúar og er hún 51 árs. Hún er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík og var kjörin varaformaður
Samfylkingarinnar í febrúar 2017 í Reykjavík. Heiða Björg er fædd og uppalin á Akureyri en fluttist til Reykjavíkur á fullorðinsárum en einnig bjó Heiða í Svíþjóð í 5 ár. Foreldrar hennar eru þau Hilmir Helgason, vinnuvélstjóri og Lovísa Snorradóttir sem starfaði í félagslegri heimaþjónustu. Eiginmaður Heiðu er Hrannar B. Arnarsson. og eiga þau saman 4 börn. Þau heita Særós Mist, Hilmir Jökull, Sólkatla Þöll og Ísold Embla.
„Þakklát fyrir hvert ár sem ég fæ að lifa. Afmælisdagar minna mig alltaf á
hve mikilvægt er að nýta tímann og njóta ferðarinnar,“ sagði Heiða Björg
þegar Mannlíf heyrði henni í tilefni dagsins.
Við hjá Mannlífi óskum henni innilega til hamingju með afmælið og vonum að dagurinn verði henni ánægjulegur.