Það sást til glaumgosans Dan Bilzerian á Sushi Social fyrr í vikunni, með honum í för voru Ignite fyrirsætur ásamt fylgdarliði. Með hópnum voru Víkingur Heiðar Arnórsson, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice sem hefur oft séð um fræga fólkið sem hingað ferðast, og Ómar Hjaltason, eigandi Base Parking í Reykjanesbæ.
Þetta mun vera fjórða skiptið sem Dan Bilzerian hefur heimsótt Ísland eins og fréttir undanfarna mánuði hafa greint frá.
Bilzerian er þekktastur fyrir lífsstíl sinn, en hann er jafnan duglegur að deila honum með fylgjendum sínum á Instagram og öðrum samfélagsmiðlum. Á Instagram er kappinn með rúmlega 28 milljón fylgjendur. Ferðalög um heiminn, snekkjur, einkaflugvélar, fjárhættuspil, byssur og fallegar konur eru hluti af lífsstíl hans og nú hefur Ísland, náttúra landsins og íslendingar bæst í hópinn.
Í Instagram-story hjá kappanum sást til hans æfa eftir lokun í nýju líkamsræktarstöðinni hjá Fjallinu, Hafþórs Júlíusar Björnssonar, spóka sig um í Reykjadal og á þriðjudag hélt hann einkasamkvæmi þar sem Jóhannes Damian Patreksson og Kristinn Óli Haraldsson, eða JóiPé og Króli, spiluðu.
Á Instagram-story mátti sjá Bilzerian og fylgdarlið hans yfirgefa Ísland á miðvikudagskvöld. Á Instagram hjá Ómari má sjá mynd af þeim félögum saman í fjórhjólaferð fyrr í sumar og mátti sjá Víking með Bilzerian í líkamsræktarstöð hans Hafþórs og í Reykjadal.
https://www.instagram.com/p/B0oGg3Mhlgq/
Mannlíf hafði samband við Víking Heiðar og Ómar og spurði þá hvort von væri á Bilzerian og fylgdarliði hans aftur og hvort að endurteknar komur hans til landsins væru meira en frí. Neituðu þeir báðir að tjá sig, en játuðu að hafa hitt hann hér á landi.