Undanfarin fjögur ár hefur Guðmundur Haukur Guðmundsson vakið athygli á Twitter í aðdraganda áramóta þegar hann tekur saman nokkra hápunkta ársins á undir myllumerkinu #ársins.
Þessa stundina er Guðmundur í miðri upprifjun fyrir árið 2019.
Mannlíf fjallaði um samantekt Guðmundar í fyrra. „Yfir árið tek ég niður hjá mér það kómíska sem gerist í fréttum eða tek skjáskot af því. Síðan vinn ég úr því í nóvember fyrir spurningakeppnina og í kjölfarið byrjar þessi yfirferð undir hashtagginu #ársins á Twitter,“ sagði Guðmundur þá í samtali við Mannlíf.
Nokkrar færslur Guðmundar má sjá hér fyrir neðan. Áhugasamir geta svo fylgt Guðmundi á Twitter til að fylgjast með þessari skemmtilegu upprifjun hans sem fer fram á hverjum degi út desember.
#ársins er hafið! Upprifjun af því kómíska sem gerðist á árinu 2019 á hverjum degi út desember.
#1 Fluga ársins fannst í garðinum hjá Bjarna Ben pic.twitter.com/Pt3UsOM5Cv
— Guðmundur H. (@gudmundurhg) December 1, 2019
#ársins heldur áfram!
#2 Brauðkaup ársins (og aldarinnar) áttu sér stað á árinu pic.twitter.com/mVQOJnnhhO— Guðmundur H. (@gudmundurhg) December 2, 2019
#ársins heldur áfram!
#3 Handaband ársins – jafntefli milli þess sem átti sér stað á golfmóti Miðflokksins, og þjálfaraskipti Fylkis pic.twitter.com/kSfZztmGl4— Guðmundur H. (@gudmundurhg) December 3, 2019
#ársins heldur áfram!
#8 Hjólreiðamaður ársins fannst á fleygiferð í Kópavogi pic.twitter.com/2pFDww2LRa— Guðmundur H. (@gudmundurhg) December 8, 2019