Laugardagur 30. nóvember, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Helga Vala hjólar í Heiðu Björg

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Orðrómur

Helga Vala Helgadóttir, alþingismaður Samfylkingar, hefur lýst yfir framboði sínu til varaformanns Samfylkingar. Þar með tekur hún slaginn við Heiðu Björg Hilmisdóttur borgarfulltrúa sem gegnt hefur embættinu um árabil. Helga Vala hefur verið áberandi sem þingmaður og sjá einhverjir í henni framtíðarleiðtoga Samfylkingar. Hún hefur látið sig flest varða en verið áberandi í baráttu fyrir hælisleitendur. Minna hefur farið fyrir Heiðu Björg sem stendur í skugga Dags B. Eggertssonar sem borgarfulltrúi. Helga Vala þykir sigurstrangleg og allt eins er búist við því að Heiða Björg hopi á hæl og gefi ekki kost á sér til áframhaldandi setu á völtum stóli varaformanns …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -