Lögfræðingurinn og stjórnmálakonan Helga Vala Helgadóttir er ekki sátt við flokk sinn, Samfylkinguna. Sérstaklega eftir að Þorbjörg Þorvaldsóttir ákvað að yfirgefa Samfylkinguna.

Mynd: Samtökin 78.
„Ég hef ekki lengur áhuga á því að hlusta á flokksfélaga mína réttlæta þessa stefnubreytingu og segja mér að hún hafi ekki orðið. En staðan er greinilega sú að það virðist vera orðið of róttækt fyrir Samfylkinguna að tala skýrt fyrir mannréttindum,“ sagði Þorbjörg Þorvaldsdóttir í tilkynningu á Facebook. Hún var afar ósátt við þingflokk Samfylkingarinnar, er sat hjá í atkvæðagreiðslu um útlendingafrumvarpið er samþykkt var 14. júní síðastliðinn.
Helga Vala segir:
„Elsku besta baráttusystir mín Þorbjörg Þorvaldsdóttir. Þetta er svo óendanlega ömurlegt bara, ég skil alls ekki neitt. Hvernig sér forysta Samfylkingarinnar fyrir sér að miðla málum í ríkisstjórn þegar öll grundvallarmálin eru fokin áður en í kosningarnar er komið? Hvernig getur flokkur sem fyrir örstuttu síðan stóð fyrir mannúð, jöfnuði og samkennd með fólki í viðkvæmri stöðu sleppt því að taka afstöðu í svona grundvallarmáli?“
Bætir þessu við:

„Hvað munum við þá sjá þegar flokkurinn þarf raunverulega að fara í málamiðlanir? Er forysta flokksins kannski bara með þessar skoðanir? Að útlendingastefna Mette Fredriksen, sú harðasta í norður- Evrópu, sem forystufólk flokksins gagnrýndi harkalega fyrir örstuttu síðan, sé kannski bara hin eina rétta stefna?“
Spyr:

„Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum? Hvað breyttist í heiminum annað en að það varð stríð í næsta nágranni og fólk á flótta hefur aldrei verið fleira? Er stríðshrjáð fólk, sem leitar verndar á Íslandi í minni neyð en áður?“
Helga Vala spyr einnig að þessu:

Telur þingfólk sem sat hjá að réttlætanlegt sé að íþyngja Útlendingastofnun með tilhæfulausum umsóknum um endurnýjun dvalarleyfa þegar stríð geysar enn sem fyrr víða um heim svo málin safnast enn hraðar upp á borðum Útlendingastofnunar? Telur hjásetufólk að fólk sem fengið hefur vernd verði betri borgarar hér á landi með því að fá að bíða í áratug eftir börnum sínum og mökum og var það þess vegna sem það sat hjá í atkvæðagreiðslunni því það gat ekki tekið afstöðu gegn þeirri aðgerð og öllum hinum.“

Segir að lokum:
„Samfylkingin er fátækari án baráttukonunnar Þorbjargar Þorvaldsdóttur.“