- Auglýsing -
Rapparinn Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, á von á sínu fyrsta barni með kærustu sinni Söru Linneth.
Árni og Sara greina frá þessu á Instagram.
„Það er lítil górilla á leiðinni,“ skrifar Árni við mynd af þeim skötuhjúum á meðan Sara deilir mynd af sónarmyndum og skrifar „Febrúar 2020“.
Parið hefur verið saman í tæp þrjú ár.
https://www.instagram.com/p/B0hjGAHgFeG/
Mynd / Hallur Karlsson