Bílaleigan Hertz svarar engu um himinhátt leiguverð sem fyrirtækið ætlaði að krefja íslenskan námsmann um í sumar. Frétt Mannlífs í gær um bílaleiguna og himinhátt verð á bíl frá fyrirtækinu vakti mikla athygli.
Þar kom fram að íslenskur námsmaður búsettur í Danmörku, sem stödd er hér á landi í fríi, hringdi í Hertz og hafði í hyggju að leigja af þeim bíl í sautján daga. Hún hætti snarlega við þegar henni var sagt að leiga í sautján daga á Toyota Yaris kostaði tæpa hálfa milljón króna.
Í frétt Mannlífs sagði meðal annnars þetta:
„Tilboðið (frá Hertz) heyrðist mér vera 44.500 krónur, og hugsaði með mér, Ok – næs.“
En námsmanninum hafði misheyrst og leigan var nokkuð hærri en 44.500 krónur:
„Þetta var 445.000 krónur í leigu á Toyota Yaris í sautján daga!“
Það þýðir að Hertz er að leigja fólki smábíl fyrir rúmar 26 þúsund krónur á dag.
Eftir að hafa heyrt þessa upphæð sagði íslenski námsmaðurinn við starfsmann bílaleigunnar að það myndi enginn borga svona háa upphæð fyrir leigu á smábíl í sautján daga; að ef hún ætti slíkan pening í veski sínu myndi hún frekar kaupa sér bíl fyrir þessa upphæð; var starfsmaður Hertz sammála þessu:
„Já, sama hér, nei, það eru bara útlendingar sem leigja á svona verði.“ Líklega eru fáir Íslendingar sem myndu samþykkja slíkt verð fyrir leigu á smábíl, og velta má því fyrir sér hvort Hertz sé fyrst og síðast að reyna að ná til túrista sem farnir eru að koma aftur hingað í stórum stíl eftir afléttinguna vegna Covid nýlega.
Mannlíf hefur reynt að fylgja fréttinni eftir, strax eftir að hún birtist í gær og í dag; sent fyrirspurnir á nokkra háttsetta starfsmenn og/eða eigendur bílaleigunnar Hertz, en viðbrögðin hafa verið nákvæmlega engin.
Fyrri fyrirspurnin var svohljóðandi:
„Góðan daginn. Langaði að athuga hvort þið mynduð vilja tjá ykkur um frétt á mannlif.is varðandi mögulega dýra leigu á bíl? Er verðið fyrir leigu á bílum hjá ykkur svona hátt? Ef svo er, þá hvers vegna? Eru slík verð hjá ykkur og öðrum bílaleigum hér á landi svipuð?
Með kveðju og von um góð viðbrögð, blm. Mannlífs.
Með fyrirspurninni var sendur linkur á frétt Mannlífs um málið.
Fyrir þremur klukkutímum sendi blaðamaður Mannlífs aðra fyrirspurn á sama fólk hjá bílaleigunni Hertz, og var hún svohljóðandi: „Er að vinna að framhaldsgsgrein um málið – fæ ég engin viðbrögð frá ykkur?“
Nú undir kvöld hafa enn engin svör frá forsvarsmönnum bílaleigunnar Hertz borist til Mannlífs.