Ökumaður bíls sem ók á ungan mann við Laugaskóla í Reykjadal sem lést af sárum sínum í gær, er ekki grunaður um að hafa ekið á of miklum hraða eða undir áhrifum. Málið er rannsakað sem slys.
Samkvæmt Fréttablaðinu vissi ökumaðurinn, ungur piltur, ekki fyrr en drengurinn, sem var nemandi við skólann, birtist án fyrirvara á veginum fyrir framan hann. Varð drengurinn undir bílnum og lét lífið. Þetta er haft eftir vitni að slysinu og staðfestir lögreglan á Húsavík að andlátið sé rannsakað sem slys.
Virðist sem ungi maðurinn hafi verið að renna sér á spjaldi niður snæviþakta brekku og komið niður á veginn við Gamla Laugaskóla þar sem bíllinn kom aðvífandi. Samkvæmt heimildarmönnum Fréttablaðsins var um „ótrúlega sorglega óheppni“ að ræða.
Talsverður fjöldi varð vitni að slysinu en þennan dag var útivistadagur í gangi í skólanum. Hinn látni er sagður hafa verið vinamargur og vinsæll en skólayfirvöld hafa gert hvað þau geta til að passa upp á sálarlíf nemenda með áfallahjálp, bænastund og fríi.