Hinn frábæri söngvari úr Nýdönsk og Gus Gus – Daníel Ágúst Haraldsson, og kona hans Anna Kolfinna Kuran listakona, hafa sett fallega íbúð sína að Háaleitisbraut 37 á sölu og vilja fá fjörutíu og fimm milljónir króna fyrir hana.
Þess má geta að á morgun klukkan 17 verður opið hús og eflaust margir áhugasamir um eignina og mögulega einhverjir sem vilja sjá hvernig sé heima hjá hinum heimsfræga Daníeli Ágúst, en önnur hljómsveit hans, Gus Gus, hefur gert garðinn frægan víða um heim og selt fjöldann allan af plötum í gegnum tíðina. Þá er Nýdönsk ein vinsælasta hljómsveit allra tíma hér á Íslandi.
Íbúðin er þriggja herbergja og sjötíu og sjö fermetrar að stærð; er í fjölbýlishúsi.
Það er Trausti fasteignasala sem sér um væntanlega sölu íbúðar Daníels og Kolfinnu og segir í auglýsingunni að um sé að ræða „fjölbýli á vinsælum stað miðsvæðis í borginni. Glæsilegt útsýni af góðum suðursvölum og fögur fjallasýn norðanmegin. Stutt í bæði skóla og leikskóla og alla helstu þjónustu.“
Sjáið myndirnar!