Haraldur Diego lét lífið í flugslysinu á Þingvallabvatni í síðustu viku, hann var tæplega fimmtugur, reynslumikill flugmaður og hafði starfað sem slíkur um árabil. Haraldur var vinsæll á meðal ferðamanna en hann rak fyrirtækið Volcano Air Iceland. Ásamt því sinnti hann formennsku AOPA, hagsmunafélags flugmanna og flugvélaeigenda á Íslandi, og ritstýrði Fluginu, tímariti um flugmál. Hann er sagður hafa verið frábær faðir og mikill fjölskyldumaður. Vinir og ættingjar minnast nú Haralds og er þeirra á meðal Malín Brand, ljósmyndari og bílablaðamaður, sem gaf Mannlífi leyfi til að deila hennar hinstu kveðju til vinar síns:
„Ótrúlega alvarleg mynd af okkur Hadda, enda vorum við að springa úr hlátri meðan myndin var tekin!
Það var nefnilega alltaf gaman þar sem Haddi var. Hann var bara þannig; með eindæmum skemmtilegur, jákvæður, vel innréttaður og bjó yfir mannskilningi og hugsanadýpt öldungs á sama tíma og af honum geislaði lífsorka, glettni og gleði æskunnar.
Strákslegt bros og prakkaralegt blik í augum – já, nákvæmlega þannig ætla ég að muna eftir Hadda.
Haraldur Diego sá skemmtilegu, góðu og spaugilegu hliðarnar á tilverunni – enda gerði hann heiminn að betri stað.
Hans verður sárt saknað og sendi ég fjölskyldu og vinum hans mína dýpstu samúð og innilegasta kærleika.“