- Auglýsing -
Hjól Bjartmars Hjólakvíslara er komið í leitirnar og það á met tíma. „Hjólinu mínu stolið og fundið sama dag !!!Nýtt met!!!“ segir Bjartmar á Facebook síðu sinni og birtir þar mynd af sér með hjólið sitt.
„Það eru sko augu að fylgjast með útum allan bæ“ segir hvíslarinn káti og þakkar svo aðilunum sem fundu hjólið og sendibílstjóranum sem skutlaði honum heim með hjólið og annað hjóls sem hafði verið tekið ófrjálsri hendi.