Bjartmar Leósson eða Hjólakvíslarinn eins og hann er kallaður var rændur í nótt. Hjóli hans af gerðinni Centurion var tekið úr anddyri hússins þar sem hann býr.
Hjólakvíslarinn segist hafa gefið U – lásinn sinn um daginn og að hann hefði ekki komist til þess að kaupa nýjan lás. hjólið var læst með áföstum lás engu að síður en það dugði ekki til og hólinu var stolið. Þetta kemur fram í innleggi sem Bjartmar setur inn á Facebookhópinn Hjóladót, tapað, fundið eða stolið.
Bjartmar biðlar til fólks að deila færslu sinni í þeirri von að hjólið hans komi í leitirnar.