Fréttakonan Hjördís Rut Sigurjónsdóttir er óvænt komin heim eftir að hafa dvalið langdvölum í Svíþjóð. Hjördís er strax komin í vinnu hjá Sjónvarpinu þar sem hún fer á kostum sem fyrr. Fyrir Svíþjóðardvölina hafði hún starfað á Fréttablaðinu, RÚV og ritstýrt Nýju lífi, svo eitthvað sé nefnt. Hjördís á ekki langt að sækja bakteríuna því hún er dóttir Sigurjóns Magnúsar Egilssonar, fyrrverandi ritstjóra og bróðurdóttir Gunnars Smára Egilssonar, þess þaulreynda fjölmiðlamanns. Það er mikill fengur að því fyrir RÚV að fá hana aftur til starfa …