Hlöllabátar hafa nú ákveðið að létta undir með heilbrigðisstarfsfólki sem standa nú í ströngu í sínum störfum. Allir heilbrigðisstarfsmönnum fá frían Hlöllabát gegn framvísun starfsmannaskírteina.
„Þetta er hugsað til að létta undir með starfsmönnum sem eru á ferðinni á milli staða og vilja minnka áhættu á að vera í snertingu við aðra viðskiptavini,“ segir á Facebook-síðu Hlöllabáta.
„Annars vonum við á Hlöllabátum að sem flest fyrirtæki fylgi í kjölfarið og styðji við okkar fólk sem er í fremstu víglínu að vinna gegn COVID19 veirunni.“