Lægð er stödd við Hvarf syðst á Grænlandi og strekkingssunnanáttin hennar beinir hlýju og röku lofti að landinu. Súld eða dálítil rigning sunnan og vestanlands í dag, en þurrt norðan- og austantil. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings um veðrið sem er framundan. Í hugleiðingum segir einnig að þar sem lítill raki sé í lofinu á þeim slóðum má búast við hlýju veðri. Hiti er nú þegar kominn í 11 stig á Siglufirði og síðar í dag verður hitnn víðar yfir 10 stig, jafnvel 15 stig á Austurlandi. Heldur svalara þó í úrkomunni, víða 4 til 9 stig.
Bætir heldur í sunnanáttina á morgun og áfram hlýtt veður, en snjónum líkar ekki sérstaklega við þessi hlýnindi. Hann mun bráðna nokkuð hratt og því útlit fyrir talverðar vorleysingar norðan- og austanlands. Kalt loft er þó ekki langt undan og útlit fyrir að það gangi inn á norðvestanvert landið síðdegis á morgun með slyddu og snjókomu annað kvöld, en áfram hlýtt annarstaðar.