Laust eftir miðnætti var lögreglu tilkynnt um mann vopnaðan hnífi utan við verslun í í Reykjavík. Lögregla mætti en hnífamaðurinn var horfinn á braut. Við eftirgrennnslan fannst enginn sem passaði við lýsingu og maðurinn var horfinn, sporlaust.
Talsbert var um ölvaða ökumenn á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla lenti í átökum við einn þeirra sem streittist á móti handtöku og þurfti að yfirbuga hann á vettvangi. Sá ölvaði var fluttur á lögreglustöð þar sem hann róaðist og lofaði bót og betrun. Tekið var úr honum blóðsýni og hann látinn laus.
Drukkinn maður barði samborgara sinn. Lögregla var kölluð til. Ofbeldismaðurinn var á leið af vettvangi þegar lögregla kom. Hann var handtekinn og læstur inni í þágu rannsóknar málsins.
Um miðja nótt var óskað aðstoðar vegna ofurölvi manns í samkvæmi sem var nær ósjálfbjarga. Eftir að lögregla kom náði hann áttum. Honum ekið til síns heima þar sem sefur úr sér vímuna.