Sextán ára piltur var í gærkvöld úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. ágúst. Ungi maðurinn er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi, skömmu fyrir miðnætti á menningarnótt í Reykjavík. Stúlka er alvarlega slösuð og í lífshættu eftir árásina. Vegna ungs aldurs verður pilturinn vistaður með viðeigandi hætti á meðan gæsluvarðhaldið varir.
Rólegt var hjá lögreglunni í nótt. Aðstoða þurfti nokkra vegna veikinda og ölvunar.
Ökumaður varf stöðvaður, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og lyfja. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Tilkynnt um eignaspjöll á póstkössum í austurborginni. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki.