Hollenska flugfélagið Transavia bregst við gjaldþroti WOW air og byrjar að fljúga frá Schiphol til Keflavíkur í sumar.
Hollenska flugfélagið Transavia mun fljúga á frá Schiphol til Keflavíkur þrisvar sinnum í viku, frá og með 5. júlí. Þetta kemur fram á vef Transavia. Þar kemur fram að þetta séu viðbrögð þeirra vegna gjaldþrots WOW air. Eins gefi þetta Transavia tækifæri til þess að stækka leiðakerfi sitt til norðurs.
Í frétt Vísis segir að flugmiðarnir verði ódýrir en miði aðra leið mun kosta því sem nemur 5.300 krónum.
Í tillynningu frá Isavia segir að flogið verði frá Schiphol til Keflavíkur þrisvar sinnum í viku, það er á mánudögum, klukkan korter í sjö að morgni og á miðvikudögum og föstudögum klukkan korter yfir fjögur síðdegis.