- Auglýsing -
Holtavörðuheiði er harðlokuð, þriðja daginn í röð. Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að staðan verði endurmetin kl. 12.
Snjóþekja, hálka eða krapi er á flestum vegum en einhverjir er ófærir í morgunsárið. Þæfingur er á Bjarnarfjarðarhálsi. Súðavíkurvegur er lokaður vegna snjóflóðahættu. Ófært er í Djúpinu milli Súðavíkur og Skötufjarðar. Dynjandisheiðin er lokuð.
Því er spáð að óveðurskaflanum sem staðið hefur á vestanverðu landinu, ljúki í dag og má reikna með að vegir opnist eftir hádegi.