Þrír aðilar gistu í fangaklefa þessa nóttina en samkvæmt dagbók lögreglu hafði hún í nógu að snúast frá því í gærkvöldi. Karlmaður var handtekinn í gærkvöldi vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Kom í ljós að maðurinn hafði einnig fíkniefni í forum sér. Þá rannsakar lögreglan hvort að maðurinn dvelji ólöglega hér á landi.
Í Hafnarfirði var lögregla kölluð út vegna slagsmála milli tveggja manna. Þegar hún mætti á vettvang gekk erfiðlega að fá úr um það skorið hvort þeirra átti upptökin. Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning frá einstaklingi sem hafði orðið vitni að 3 til 4 mönnum ráðast á einn. Kemur fram í dagbók lögreglu að mennirnir hafi kýlt og sparkað í manninn. Þegar lögrega kom á vettvang voru allir mennirnir á bak og burt. Sá sem ráðist var á hefur enn ekki gefið sig fram við lögreglu. Þá var rúða brotin í skóla en ekki liggur fyrir hvort skemmdarvargurinn hafi farið inn í skólann til þess að stela. Við annan skóla voru krakkar að sprengja flugelda. Þau létu fætur toga þegar þau sáu lögreglu og hlupu öll í sína áttina.