- Auglýsing -
Egill Helgason segir á Facebook-síðu sinni um HM í Katar sem nú er í fullum gangi:
„Þau eru alveg prýðileg í HM-stofunni og lífleg skoðanaskipti. En hlífið okkur, við höldum ekki öll með Englandi eða höfum taugar til þess liðs,“ ritar Egill og fær töluvert af athugasemdum.
Til að mynda frá fjölmiðlamanninum Árna Snævarr, sem segir einfaldlega um hinn goðsagnakennda lýsanda, Hörð Magnússon, eða Hödda Magg, eins og hann er alltaf kallaður:
„Hörður Magnússon myndi deyja ef England tapaði og konurnar brynna músum.“