Hótel Grímsborgir er fyrsta hótelið á Íslandi til aðð fá vottun sem fimm stjörnu hótel frá Vottunarstofunni Túni og Ferðamálastofu í samræmi við kröfur Vakans gæða- og umhverfiskerfis ferðaþjónustunnar segir í fréttatilkynningu frá hótelinu.
„Við hjá Hótel Grímsborgum erum himinlifandi og stolt með 5 stjörnu viðurkenninguna sem er hvatning til að gera enn betur og halda áfram að gera allt sem í okkar valdi stendur til að bjóða gestum okkar upp á stórkostlega upplifun á meðan á dvöl þeirra stendur,“ segir í tilkynningunni.
Hótelið er staðsett í Grímsnesi við Gullna Hringinn á bökkum Sogsins og tekur allt að 240 gesti í gistingu í 68 superior herbergjum, 7 svítum, 5 stúdíóíbúðum og 7 stærri íbúðum með 4 svefnherbergjum hver sem rúma allt að 8 manns. Herbergin og svíturnar eru með sér verönd/svalir og allir gestir hafa aðgang að heitum pottum sem eru samtals 29 á hótelinu.
Vakinn er sérhannað gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu sem byggir á erlendri fyrirmynd. Gæðaviðmið Vakans fyrir hótel byggja á viðmiðum Hotelstars Union, hotelstars.eu samkvæmt nýju fyrirkomulagi sem tók gildi í byrjun árs 2019.
Ferðamenn um allan heim eru vanir að hafa stjörnugjöf til viðmiðunar þegar þeir velja sér gististaði. Stjörnugjöf hefur alþjóðlega skírskotun og auðveldar fólki að velja sér gistingu í þeim gæðaflokki sem það kýs þó flokkunin sé ekki alfarið samræmd milli landa.