Í Lögbirtingablaðinu kemur fram að að Base hótel á Ásbrú, sem Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW, opnaði 2016, hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta í Héraðsdómi Reykjavíkur. RÚV greinir frá því að gjaldþrotaskiptin hafi verið gerð daginn eftir að hótelinu var lokað og starfsfólkinu sagt upp.
Hótelið opnaði árið 2016 og var það í eigu félagsins TF Hot ehf sem er í eigu Skúla. Fyrir þremur árum síðan var fasteign hótelsins auglýst til sölu og sagði Skúli það vera til að fjármagna höfuðstöðvar WOW og hótel í Kópavogi. Hins vegar varð ekkert af sölu eignanna.
Fréttastofa RÚV greindi frá því í síðustu viku að þrotabú WOW hefði höfðað á annan tug riftunarmála og að Skúla sé stefnt í öllum málunum. Er gerð skaðabótakrafa á hendur honum þar sem hann samþykkti allar greiðslurnar. Þess er einnig krafist að að Títan, móðurfélag WOW, verði tekið til gjaldþrotaskipta eftir árangurslausa kyrrsetningu í eignum félagsins.
Nýverið greindi Morgunblaðið frá því að hópur skuldabréfaeigenda sem tók þátt í skuldabréfaútboði WOW í september 2018 hefði sent fyrrverandi forstjóra og stjórn bréf þar sem þess væri krafist að þau bættu það tjón sem skuldabréfaeigendurnir urðu fyrir þegar WOW fór í þrot. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru stjórnendurnir sem kröfurnar beinast að Skúli Mogensen, Liv Bergþórsdóttir, þáverandi stjórnarformaður, Helga Hlín Hákonardóttir lögmaður og Davíð Másson, flugrekandi og fjárfestir.
Fréttin hefur verið uppfærð.