Upptökur úr eftirlitsmyndavél á lestastöð í Bandaríkjunum sýna óhugnalega atburðarás þegar kona hrindir þriggja ára barni út á lestarteinana.
Litla stúlkan stóð ásamt móður sinni og beið eftir lestinni, hin 32 ára Brianna Lace Workman sat á bekk fyrir aftan mæðgurnar. Eins og sést á meðfylgjandi myndbandi, stendur Brianna upp og hrindir þriggja ára stúlkunni út á lestarteinana, svo virðist sem að ástæðulausu.
Almennir borgarar voru fljótir að bregðast við og náðu stúlkunni upp heillri á húfi, áður en næsta lest kæmi á ógnarhraða. Hún fékk þó mikinn höfuðverk eftir atvikið, enda lenti hún á enninu.
„Barnið lenti með andlitið fyrst, á járnteina og grjót. Henni var bjargað á methraða. Barnið sagði frá slæmum höfuðverk og var rauð á enni,“ sagði í tilkynningu frá lögreglunni.
Brianna situr nú undir nokkrum kærum, fyrsta stigs líkamsárás, þriðja stigs líkamsárás, truflun á almenningssamgöngum og fyrir að vísvitandi koma öðrum en sjálfum sér í hættu.
Varað er við myndbandinu hér fyrir neðan.