Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í heimahúsi í Breiðholtinu á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Ýmsum smámunum var stolið. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglunni barst tilkynning um tvær ungar konur að brjótast inn í bifreiðar í Breiðholti í nótt. Þær fundust skömmu síðar. Báðar voru í annarlegu ástandi með fíkniefni og þýfi meðferðis. Þær voru handteknar og vistaðar í fangageymslu.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í afgreiðslu slysadeildar í Fossvogi rétt fyrir 22:00 í gærkvöldi. Maður í annarlegu ástandi var með læti. Við afskipti veittist hann að og hrækti á öryggisvörð og lögreglu. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Sex ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt, grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Allir voru látnir lausir eftir sýnatöku nema einn sem var vistaður í fangageymslu. Sá hafði misst stjórn á bifreið sinni sem hafnaði á ljósastaur í Kópavogi um 01:00 í nótt. Bifreiðin var óökufær en ökumaður ómeiddur.
Gærkvöldið og nóttin voru með rólegra móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 56 mál voru bókuð á tímabilinu 17:00-05:00.